Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

föstudagur, júlí 29, 2005

Ísland!

Komin heim. Heim í Hafnarfjörð.
Búin að hitta fullt af fólki, tala við enn fleira fólk. Fara í göngutúr og heimsóknir og versla pínulítið og fá nýja ferðatösku í stað þeirrar sem eyðilagðist á leiðinni, drekka kaffi á gamla kaffihúsinu, og draga að mér saltblandað loftið. Yndislegt alveg.
Nú þarf ég að massa eina ræðu. Átti skemmtilega stund á Eiffel bar með Óla mínum og nágrannakonunni minni þar sem ræðan var rædd og ýmislegt rifjað upp sem gengið hefur á í samskiptum mínum og brúðgumans í gegnum þennan aldarfjórðung sem við höfum þekkst.
Þetta gæti orðið skemmtileg ræða.
Ætla að hugsa meira skemmtilegt! Kærustu kveðjur heim til ykkar sem með mér búið.