Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

mánudagur, janúar 28, 2008

Að ósk Heiðrúnar.

Veðrið var með eindæmum í dag, bjart, stillt og hlýtt miðað við árstíma. Stóru strákarnir héldu upp á það með því að fara í sund, meðan litli maðurinn lá sáttur við hlið móður sinnar sem var haldinn votti af timburmönnum, ussususs!

,,Hei pabbi, hann heitir Selur Snorri eins og litli bróðir minn heitir Úlfur Snorri." Björn glaður að finna nafna bróður síns.
,,Mamma má ég fara í Súpermannbuxur, Súpermannpeysu og Súpermannkappa?" Telur alltaf upp allar flíkurnar í nýja Súpermanngallanum.
,,Mamma eigum við að leika að þvottagrindverkið var leikhús og þú varst stelpan sem sagðir að leikhúsið var að byrja og ég var súperheltinn" Skreið svo undan þvottagrindinni við æsilega kynningu móður sinnar, gekk teinréttur í súpermanngallanum og hóf að sýna hættuleg atriði fyrir bróður sinn sex mánaða. Faðirinn hóstaði ,,gay" í lófann á sér og mamman pissaði næstum á sig úr hlátri.
Litli bróðir er kominn með eina tönn sex mánaða og 10 daga var hann, fjórum dögum eldri en stóri bróðir var. Hann er farinn að digga graut, lepur honum í sig, galopnar munninn og baðar út öllum öngum af æsingi og segir úúúúhh!
Svona er nú það í okkar húsum í dag.

Efnisorð:

Efnisorð: