Hmmm.
Já. Það er nú það.
Björninn fór í pössun í dag í fyrsta sinn. Það er svona í alvöru pössun. Síðasta vika hét aðlögun, en núna er þetta orðið formlegt. Faðir fór af stað fyrir allar aldir, í kolniðamyrkri og rennandi rigningu. Við Björninn töltum svo út um átta, í björtu regni. Ég fór á fyrirlestur í Hvidovre um verkefni sem við eigum að skila í júní, og svo átti að vera eitthvað námsskeið á eftir í því að skrifa, en það kom enginn kennar þannig að ég var bara búin rúmlega tólf. Sótti ungann sem var að vakna þegar ég kom. Hann horfði á mig, brosti og fór svo að hágráta. Ég varð agalega miður mín. En Elín barnapía kunni ráð við því. Sagði mér bara að hann væri loksins að fatta það að hann hefði verið ,,einn" allan tímann.
Hann er búinn að vera hinn sprækasti undanfarið. Segir dadda og dedda og dudda og edda og allskonar ed hljóð. Er alveg hættur í mama og baba sem var vinsælast um daginn. Borðar líka eins og hestur ef honum finnst eitthvað gott en grenjar eins og grís ef það er vont.

