Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Getraun um óróa

Það gengur svo nærri mér ástandið hérna að mér er bókstaflega orða vant. Hryðjuverk í gær, fuglaflensa í dag, hvað verður það á morgun. Amager allt í einu komin í hringiðu alþjóðastjórnmála og alþjóðaflensna, hvoru tveggja eirir engu. Lætur ekkert ósnortið, fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel, sem hvorugt fyrirfinnst reyndar hér í landi, en aungvu að síður, ég er snortin og í mér er órói.
Ég veit ekki hvort ég á að vera eða fara, og hvert er svo sem hægt að fara?
Það eru erfiðir tímar, og bárur frelsis langt undan. Ár og dagar líða og bjöllurnar gella í heiðskýrri nótt, enginn veit fyrr en reynir á, hvað lífið hefur upp á að bjóða.
Mér er skapi næst að syngja lítið lag um lífsgleðina sjálfa,og bjóða þeim byrginn sem vekja með mér óróa. Hvar ertu núna, spyr ég, hvert liggur þín leið?

Sá sem getur allar tilvitnanir (mér vitanlega) fær verðlaun!