Óþolinmæði í júlí
Í dag er ég búin að ganga með þetta barn í 261 dag. Ég er of tilbúin í að hitta það. Hef enga þolinmæði í að bíða lengur eftir því. Næst ætla ég ekki að hætta að vinna ellefu vikum fyrir áætlaðan dag. Það hefur reynst mér of langur tími í að gera ekki mikið. Kannski þetta væri annað ef ég byggi í húsi með garði, nú eða ef veðrið hefði verið heldur betra, þannig að hægt hefði verið að slæpast á ströndinni. Eða ef ég væri mikil hannyrðakona og hefði geta sinnt hannyrðum. Kannski skiptir ekkert af þessu máli, kannski væri ég alltaf orðin óþolinmóð á þessum tímapunkti, og til í að sjá ungann. Veit ekki, veit bara að ég hlakka til að ljúka þessu ferli og takast á við komandi ferli.
Ég hlakka líka mikið til sumars í Reykjavík og á Íslandi, hlakka til að búa niðri í bæ, og geta rölt um allt. Er að átta mig á því núna að við náum menningarnótt í Reykjavík, ég held ég hafi aldrei verið í bænum þá ágætu nótt, það verður spennandi.
Afmæli Bjarnarins fóru vel fram. Kastalinn breyttist reyndar í Borgarvirki og við pissuðum næstum í okkur af hlátri við gerð hans, en börnin heilluðust af virkinu og fannst það bæði flott og gott, og annar viðurgjörningur lukkaðist vel. Veðrið var reyndar ekki eins og óskað hafði verið og því varð ekkert úr grilli eða útiveislu, en sem betur fer býr kollegíið að barnaherbergi sem hægt er að fá lánað þegar mikið liggur við.
Gjafirnar sem drengnum bárust voru alveg eftir hans höfði, ljótir kallar og hættuleg föt. Hann var afar sáttur við þetta allt saman! Myndir koma síðar þar sem að ég er ekki alveg fær um að opna myndasíður í Ólatölvu...
Í dag eru 366 dagar þar til ég á næst afmæli.

