Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

miðvikudagur, janúar 14, 2009





Gleðilegt nýtt ár.

Björn Rafnar fimm og hálfs var að lýsa fyrir mér konu á mínum aldri sem við mættum í dag.
Hún var svoldið gömul í framan, í grænum jakka og það var undarleg lykt af henni. Svona rósablóma lykt af jakkanum hennar.

Úlfur Snorri eins og hálfs segir mamma og drekka meira.
Þeir eru báðir kátir og sáttir við að vera byrjaðir á nýju ári. Björn nokkuð spenntur fyrir Grænlandsför, Úlfur hefur enga hugmynd um fyrirhugaða flutning og staualst á sínum sveru fótum um allt innanhús. Það er erfiðara að fara yfir utandyra sérstaklega nú þegar þarf að klæðast kuldagalla á hverjum degi.
Björn æfir júdó á sunnudögum og byrjar í ryþmík síðasta mánudag janúar mánaðar. Hann fékk glimt í øjet þegar ég spurði hann hvort hann langaði að vera með í X Factor, en af sinni alkunnu hógværð svaraði hann. Þú ræður því, þú ert mamma mín. Mikið held ég að hann langi að vera með.
Úlfur æfir sig í að hlaupa, og tala en æfingarnar eru ekki enn farnar að skila sjáanlegum árangri. Vonandi að eitthvað gerist með hækkandi sól.