laugardagur, mars 20, 2004
Vorið kom og vorið fór, sína leið. Það á að koma aftur, eða það hlýtur að vera. Það verður að vera.
Björninn náði að breytast í massasandætu þessa fjóra daga sem vorið stóð yfir. Stóð sig einna best á fimmtudaginn út á róló. konan á móti gætti hans eitt augnablik meðan ég skrapp út í búð og hann nýtti einmitt tækifærið til að taka Sand 600 rétt á meðan. Gróf höndunum niður, hóf þær upp aftur, með handarbökin upp og bar þær að munni sér, þaktar sandi. Afleiðingar þess má enn sjá í bleyjuskiptum.
Við pössuðum Hrafnhildi 10 mán. í gær. Hún stóð sig vel að vanda. Var eiturspræk með eina tönn. Svo spræk að Matthildur 2oghálfs fór að gráta undan henni. Ðats mæ görl sagði pabbi hennar bara, stoltur af sinni.
Björninn að leggja sig núna, pabbinn í Svíþjóði að vinna, og móðir situr heima og leiðist með sjálfri sér. Á eftir ætlum við út að ganga og fá okkur loft, mikið verður það nú gott.

