Nýársnótt
Nýársnótt á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn.
Súkkuladi, kaffi og sódavatn, kannski ég fái mér súrmjólk med múslí í fyrramálid. Kannski.
Sjúkkarnir furdu brattir. Thrátt fyrir ad margir theirra séu ad öllum líkindum ad upplifa sín sídustu áramót. Vid tölum ekki um thad, tölum ekki um framtídina. Óskum bara gledilegs árs og dáumst ad flugeldunum, útsýnid gott af fimmtu (sjöttu) hæd í frístandandi húsi. Stundin samt tilfinningathrungin, sennilegt ad thau hafi grátid svoldid í koddann sinn thegar inn á herbergi var komid.
Brádum fer ég í nuddstólinn og pávernappa, svo blanda ég sýklalyf og geri klárt fyrir blódprufutökur. Klukkan átta tek ég strætó heim til mín. Thad verdur fródlegt ad sjá ástandid thar. Ad sögn Óla sátu thar 16 manns ad spili og sumbli, á medan börnin sofa hvert um annad thvert. Nýársdegi verdur varid í svefn og afmæli stúlkunnar á móti. Svo tekur vid ný nótt í nýrri viku á nýju ári.
Gledilegt ár gott fólk, og thakkir fyrir allt lidid. ingibjörg.

