Það eru blikur á lofti! Fólk farið, aðrir farnir að hugsa sér til hreyfings. Þessi tími á árinu sem vekur mig til umhugsunar um lífið og tilveruna. Upprifjanir á bernskubrekum og barnalátum. Einhver órói í allri ládeyðunni.
Ég sakna þeirra sem hafa flutt undanfarið, og finn svo til með þeim að þurfa að feta þessi nýfluttu spor í heimalandinu. Finn aðallega til með þeim af því að ég kvíði því svo sjálf að fara. Kvíði því að missa nærveruna og afskiptin sem við höfum hvort af öðru í litla þorpinu okkar. Sem stundum er samt svo erfitt. Þegar illa gengur hjá einhverjum þá tek ég það inn á mig og verð alveg miður mín fyrir þeirra hönd. En alveg eins þegar vel gengur, þá verð ég svo kát og glöð.
Það skiptast á skin og skúrir í manneskju lífinu, ekki hjá því komist.
Björninn minn kom til baka frá Næslandi á sunnudaginn. Fór í sína sjöttu ferð með föðurnum sínum sem fór að fylgja ömmu sinni síðasta spölinn. Hann stóð sig bara vel, sá litli þeas, og spjallaði við flesta sem hann hitti. Debúteraði með gubbupest heimferðardaginn og Ólinn alveg í stressi að hann myndi spýja yfir fólkið sem sat fyrir aftan þá í vélinni og Björn hafði mikinn áhuga á að spjalla við. Það gerðist sem betur fer ekki.
Ég á að sitja við og gera námsáætlun fyrir síðustu vikur í praktík, fátt eins gott eins og að blogga þegar á að læra. Hér sést best hversu oft ég læri heima...

