Ha, ha,ég læt bara eins og ekkert sé og þá fattar enginn hvað það er liðið langt síðan síðast.
Djibbý djei. Björninn kann að labba. Og labbar og labbar. Ákaflega varlega samt. Heldur sér í þar sem er tak, og röltir sér í rólegheitum þar sem ekkert hald er. En montinn er hann og kátur með þessa framför. Sætastur auðvitað og skemmtilegastur. Oftast. Er að taka tennur og mótþróa þessa dagana. Það krefst þolinmæði af foreldranna hálfu. Bakföllinn í matarstólnum eru þó farin að taka á taugarnar. Móðir stressast og veit ekki hvernig hún á að bregðast við. Á maður að þykjast ekki sjá, byrsta sig, leiða athyglina að einhverju öðru, syngja(!) eða hvað? Hvert bakfall býður upp á nýja lausn. Sú rétta er ekki fundinn enn, ég læt vita þegar þar að kemur.
Breytingar hafa orðið í nýlenduninni okkar. Fjölgun og fækkun. Nýjum einstaklingum hefur fjölgað hressilega. Ekki óviðbúið reyndar, en alltaf jafn gleðilegt þegar maður ber þessi undur augum. Svo hefur sumt fullorðið fólk tekið upp á því að fara yfir hafið með ungana nýklakkta og hugsa ekkert til þess að maður þurfi að fá að fylgjast með þeim. Já já svona gerir fólk bara. Við gerum þá ekki annað en að óska þeim gæfu og gjörvuleika í heimabænum, og getum látið okkur hlakka til að heimsækja þau. Mmmm.
Haustið er komið. Það er kalt, en fallegt og ég er stundum angurvær. Spítalinn býður upp á angurværð. Þar deyja jafnmargir og fæðast hér, eða eiginlega miklu fleiri. Starfsfólkið er samt enn gott og leiðir okkur í gegnum þetta allt saman. Allir voða samstíga í því að kenna okkur og styrkja. Mjög gott!
Angurværð minnir á værð og rekkjuvoðir. Farin að vitja rekkju minnar.

