Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

miðvikudagur, janúar 14, 2009





Gleðilegt nýtt ár.

Björn Rafnar fimm og hálfs var að lýsa fyrir mér konu á mínum aldri sem við mættum í dag.
Hún var svoldið gömul í framan, í grænum jakka og það var undarleg lykt af henni. Svona rósablóma lykt af jakkanum hennar.

Úlfur Snorri eins og hálfs segir mamma og drekka meira.
Þeir eru báðir kátir og sáttir við að vera byrjaðir á nýju ári. Björn nokkuð spenntur fyrir Grænlandsför, Úlfur hefur enga hugmynd um fyrirhugaða flutning og staualst á sínum sveru fótum um allt innanhús. Það er erfiðara að fara yfir utandyra sérstaklega nú þegar þarf að klæðast kuldagalla á hverjum degi.
Björn æfir júdó á sunnudögum og byrjar í ryþmík síðasta mánudag janúar mánaðar. Hann fékk glimt í øjet þegar ég spurði hann hvort hann langaði að vera með í X Factor, en af sinni alkunnu hógværð svaraði hann. Þú ræður því, þú ert mamma mín. Mikið held ég að hann langi að vera með.
Úlfur æfir sig í að hlaupa, og tala en æfingarnar eru ekki enn farnar að skila sjáanlegum árangri. Vonandi að eitthvað gerist með hækkandi sól.

miðvikudagur, desember 17, 2008

Hahaha

Ingibjörg skringibjörg, gerði skissu!

fimmtudagur, nóvember 13, 2008

Efnisorð:

miðvikudagur, nóvember 12, 2008

Efnisorð:

Efnisorð:

Örferð til Íslands í örstuttu máli.

Ég og rándýrin fórum til Íslands og stoppuðum of stutt. Ég fékk magakveisu og var frá í hálfan annan sólarhring, Úlfur eyrnabólgu og hlaupabóluvírus í kerfið, sem einmitt braust út sl. laugardag. Það var svolítið kalt, svo kom snjór og örugglega rigning, man það ekki svo gjörla, og svo gekk á með éljum og þá vorum við með Heiðrúnu í Þrengslunum nestuð vatni og Tomma og Jenna kexi. Við stolkkuðum aðeins Trúðana og tókum ESK með í það. Þeir félagar Bóbó og Einstein slóugust með sverðum, spiluðu tölvuspil og horfðu á mynd. Við fengum tvisvar lasagna og tvisvar kjötbollur. Úlfur borðaði mest hafragraut og minnst annað. Hörður Rafnar litli frændi er mjög sætur og vakti hjá okkur lukku. Ömmurnar bara hressar, Starkaðarhús á Stokkseyri er uppáhaldshúsið mitt í augnablikinu, sérstaklega í ljósi þess hverjir búa þar um þessar mundir. Ég fór á tónleika Söngskólans í R og heyrði litlu frænku syngja undurfallega og leika með eins og hún hefði ekki gert annað. Í Gufunesi var enginn söngur, en gott að koma og kveikja ljós fyrir galla. Svo borðuðum við aðeins kleinur og fórum aftur heim.
Set inn nokkrar myndir, ánægjunnar vegna.

miðvikudagur, október 15, 2008




Efnisorð:

Verðtryggt blogg.

Sá sem síðast átti afmæli er nú kominn með átta framtennur og tvo jaxla.
Hann gekk einn og óstuddur um heimili sitt sl. laugardag.
Síðan hefur hann ekki gengið mjög mikið, en eitthvað þó.
Hann borðar helst sósur, osta og smjör.
Síst af öllu vill hann fisk, kjöt og matreitt grænmeti.
Honum finnst skemmtilegast að leika sér með bolta, að lesa og róta í smádótinu hans Björns.
Aðaláhugamálið er þó að láta hluti detta á gólfið, þá skiptir engu hvort um er að ræða fullt mjólkurglas, matardisk, bók, leikföng eða snuð.
Hann hefur mjög gaman af öðrum börnum og sér í lagi bróður sínum.
Hann er yfirleitt mjög kátur, en lætur vel í sér heyra ef honum mislíkar eitthvað, með tilheyrandi bakföllum og slá hausnum í það sem næst er köstum.

Bróðir hans hann Björn Rafnar er viðkvæmt blóm sem skýlir sér bakvið kaldrifjaðan bardagamann.
Hann fór að gráta þegar sá yngri tók fyrstu skrefin, ,,af því ég er svo glaður að hann kann að labba".
Hann fór að gráta þegar Pálmi Gunnarsson söng Þitt fyrsta bros...eins þegar pabbi hans (þe. Óli sko, ekki Gunnar pabbi Pálma) söng Maístjörnuna.
Hann fór líka að gráta þegar hann kvaddi Flóka vin sem var að fara til Íslands í tíu daga.
Hann hlær samt oft, sérstaklega þegar einhver kitlar hann, eltir hann, dansar við hann eða ærslast á einhvern hátt með honum.
Hann hefur líka húmor, og gat slegið pabba sinn út af laginu þegar hann lýsti því yfir að hann vissi sko alveg að pabbar væru að fara til Berlínar að kaupa rassakrem, og sprakk úr hlátri.
Inn á milli segir hann mér að muni drepa hina og þessa ógnvætti ef þeir geri svo lítið að nálgast okkur.

Þetta var um aðalmennina.

Við sem vegum meir en hálft hundrað og minna en heilt erum mishress. Ég er fantaóhress með Íslandsklúðrið mikla. Skítt veri með snekkjur, þyrlur og þotur. Hvar var eftirlitið og hvernig var hægt að láta eins og allt væri í himnalagi með þetta, og hvernig er hægt að komast upp með svona hundakúnstir, og afhverju studdu allir viðskiptafræðingarnir í bönkunum þetta, afhverju tók fólk möglunarlaust þátt í að velta á undan sér grilljaðra skuldum án þess að staldra við og spyrja sig hvort þetta væri óhætt?
Að öðru leyti er ég hress. Er á leið til fyrirheitna landsins með danskan farareyri, þetta mun verða í fyrsta skipti sem ég upplifi mig sem fjárhagslega vel stæða konu!
Óli ætlar að vera heima að læra meðan við börnin burgeisum á Íslandi. Hann er að vinna í BA og mun klára ritgerð í desember.

Lýsi hér með eftir skýringu á verðtryggingunni. Ég hata hana eins og pestina og get ekki skilið að hún sé réttmætt, og svo heyrði ég Jóhönnu segja að það kæmi ekki til mála að afnema hana og þá varð mér allri lokið! Hvað gerir verðtryggingin fyrir íslenskt samfélag?

miðvikudagur, júlí 16, 2008

Hann á afmæli í dag




Efnisorð:

fimmtudagur, júlí 10, 2008

Ég á afmæli í dag!